Wahoo Fitness Run/Gym er alhliða heilsuræktarpakki fyrir iPhone, sem gerir þér kleift að fylgjast betur með því hvernig þú æfir.
Með kaupunum fylgir púlsmælir sem þú setur um um brjóstkassann á þér, og lítill lykill sem tengist við dokkutengið á iPhone símanum.
Vörurnar frá Wahoo Fitness virka með öllum vinsælustu heilsuræktarforritum á iPhone (t.d. Runkeeper, Runmeter, MapMyRide o.fl.).
Hægt er að nota heilsuræktarpakkann á iPhone 3G / 3GS / 4 og 4S.
Ummæli eiganda
„Ég nota Wahoo Fitness Run/Gym pakkann á RunKeeper Elite á iPhone símanum mínum. Það tók mig u.þ.b. 20 mínútur að læra á þetta, en nú er það töfrum líkast hvað þetta virkar vel. Ég get fylgst með púlsinum mínum á iPhone símanum, og þ.a.l. lagað æfinguna að því, sem er mér hjartans mál"



