Wahoo Fitness býður nú upp á reiðhjólafestingu þannig að iPhone eigendur geta hjólað milli áfangastaða og fylgst áhyggjulausir með reiðhjólatúrnum sínum.

Vörurnar frá Wahoo Fitness virka með öllum vinsælustu heilsuræktarforritum á iPhone (t.d. Runkeeper, Runmeter, MapMyRide o.fl.).
Ef þú hefur áður fest kaup á Wahoo púlsmælinum, þá geturðu einnig fylgst með púlsinum þínum á meðan þú hjólar.
Hægt er að nota reiðhjólafestinguna á iPhone 3G / 3GS / 4 og 4S.




