Wahoo púlsmælir fyrir iPhone 4S
1

Wahoo púlsmælir fyrir iPhone 4S

14.990 kr.




Fjöldi:

Til baka
Wahoo púlsmælirinn er fyrsti sinnar tegundar í heiminum, sem notar Bluetooth Smart tækni til að senda púlsinn yfir í iPhone 4S símann þinn.

Einfalt er að nota mælinn, en eina sem þú þarft að gera er að smella bandi utan um brjóstkassann þinn (sjá mynd til hægri).

Eftir að þú byrjar að nota Wahoo púlsmælinn þá geturðu nánast hætt að kaupa líkamsræktarkort því Wahoo hefur góð áhrif á iPhone 4S símann þinn og breytir honum í allsherjar æfingatæki.

Auk þess að senda frá sér Wahoo forritið, sem er til alls líklegt, þá virkar púlsmælirinn líka með vinsælum forritum á borð við RunKeeper, MapMyRide og fleiri forritum, þannig að tryggir notendur þeirra forrita þurfa ekki að örvænta.

Eftirfarandi forrit virka með Wahoo púlsmælinum:
321Run, 321Run Free, Cyclemeter, cyctastic, Endomondo Sports Tracker, Endomondo Sports Tracker Pro, iMapMyFitness, iMapMyHike, iMapMyRIDE, iMapMyRide+, iMapMyRun, iMapMyRun+, iSmoothRun, MotionX GPS, Runkeeper, Runmeter, runtastic, runtastic PRO, Wahoo Fitness, Walkmeter og Walktastic.

Vert er að taka fram að tækið virkar einungis á iPhone 4S, ekki eldri tækjum.