Rover njósnaskriðdrekinn er stórsniðugt tól, sem er er auðveldur í notkun, og er bæði hægt að hafa gagn og gaman af.
Til þess að stjórna Rover skriðdrekanum þarftu einungis að eiga eitt iOS tæki, þ.e. iPod touch (2. kynslóð eða nýrri), iPhone eða iPad. Með þessum tækjum geturðu bæði séð allt sem skriðdrekinn sér og hlustað á allt sem hann heyrir. Einnig er hægt að smella af myndum með skriðdrekanum, og breyta honum þannig í nokkurs konar fjarstýrða myndavél.
Úr hversu mikilli fjarlægð get ég stjórnað skriðdrekanum?
Allt að 60 metra undir berum himni (eða stóru rými innandyra) en u.þ.b. 30 metra ef veggir eru á milli tækjanna tveggja.
Þurfa bæði tækin að vera tengd við sama Wi-Fi?
Þurfa bæði tækin að vera tengd við sama Wi-Fi?
Nei. Rover skriðdrekinn varpar sjálfur frá sér þráðlausu staðarneti sem iOS tækið tengist.
Ég vil nota Rover skriðdrekann í myrkri eða illa lýstu umhverfi. Virkar það?
Já. Rover skriðdrekinn er með innrauða nætursjón þannig að þú getur séð hluti í myrkri.
Ummæli nokkurra eigenda tækisins
„Hann er frábær á iPad og iPhone. Myndavélin er góð og myndirnar sem hann tekur koma virkilega á óvart. Nætursjónin er stórkostleg. Ég trúi ekki að maður geti fengið svona góða myndavél með nætursjón sem hægt er að fjarstýra á svona góðu verði."
„Kærastinn minn notar Roverinn til að líta eftir hlutum á háaloftinu, en aðallega er hann notaður til gamans. Við sitjum oft á sófanum og skemmtum okkur yfir honum. Hann elskar þetta tæki."
Sjón sögu ríkari, og við mælum eindregið með því að horfa á myndbandið að neðan til að sjá tækið í notkun.



