
Steve Jobs, fyrrum forstjóri Apple, var þekktur fyrir fullkomnunaráráttu sína, og það er greinilegt að hún var til staðar við gerð iPhone 4. Síminn er formfagur, fer vel í hendi, og er auk þess mjög notendavænn þannig að fólk á öllum aldri á auðvelt með að læra á og nota símann.
iPhone 4 er með Retina skjá sem markaði tímamót í heimi snjallsíma þegar hann kom á markað, þar sem síminn er með talsvert betri skjáupplausn en almennt tíðkaðist þá hjá keppinautum Apple.
Síminn er með 5MP myndavél, með autofocus og LED-flassi, sem býður upp á myndbandsupptöku í háskerpugæðum (HD). Þar að auki er myndavél á framhlið símans fyrir myndsímtöl.
Tæknilegar upplýsingar

Loftnet
Símkerfi: Quad-band (GSM 850 / 900 / 1900 / 2100)
3G kerfi: HDSPA 850 / 900 / 1900 / 2100
W-LAN: Wi-Fi 802.11 b/g/n.
Skjár
3.5" snertiskjár
640x960 dílar
Sterkt gler með kámvörn
Myndavél
5MP, 2592x1944 dílar, LED-flass, autofocus.
Hægt er að stilla fókusinn með því að snerta skjáinn.
Myndbandsupptaka í háskerpugæðum, 720p.
VGA myndavél á framhlið símans, 480p.
Rafhlöðuending
Í biðstöðu: Allt að 300 klst.
Taltími: Allt að 7 klst yfir 3G, allt að 14 klst yfir 2G (EDGE).
Internet: Allt að 6 klst yfir 3G, allt að 10 klst á Wi-Fi.
Spilun myndbanda: Allt að 10 klst.
Spilun tónlistar: Allt að 40 klst.



