iPhone 4S 64GB svartur
1

iPhone 4S 64GB svartur

159.900 kr.




Fjöldi:

Til baka

Mest seldi iPhone sími allra tíma. Öflugasti iPhone sími allra tíma. Aðstoðarkonan Siri er með þér hvert sem þú ferð. 


Steve Jobs, fyrrum forstjóri Apple, var þekktur fyrir fullkomnunaráráttu sína, og það er greinilegt að hún var til staðar við gerð iPhone 4. Síminn er formfagur og fer vel í hendi, sem varð til þess að þegar ákveðið var að síminn skyldi fá uppfærslu ári eftir útgáfu iPhone 4 þá var einungis ákveðið að gefa símanum hressilega vélbúnaðaruppfærslu, en að sama skelin skyldi notuð áfram.


iPhone 4S er með Retina skjá sem markaði tímamót í heimi snjallsíma þegar hann kom á markað, þar sem síminn er með talsvert betri skjáupplausn en almennt tíðkaðist þá hjá keppinautum Apple.

iPhone 4S hefur að geyma nýja og endurbætta 8MP myndavél, með magnaða linsu. Þar að auki er hægt að taka upp myndbönd í fullri háskerpu á símanum (1080p myndbandsupptaka með hristivörn). Að endingu er myndavél á framhlið símans fyrir myndsímtöl.



Tæknilegar upplýsingar

iPhone lýsing

Loftnet
Símkerfi: Quad-band (GSM 850 / 900 / 1900 / 2100)
3G kerfi: HDSPA 850 / 900 / 1900 / 2100
W-LAN: Wi-Fi 802.11 b/g/n.

Skjár
3.5" snertiskjár
640x960 dílar
Sterkt gler með kámvörn

Myndavél
5MP, 2592x1944 dílar, LED-flass, autofocus.
Hægt er að stilla fókusinn með því að snerta skjáinn.
Myndbandsupptaka í háskerpugæðum, 720p.
VGA myndavél á framhlið símans, 480p.

Rafhlöðuending
Í biðstöðu: Allt að 200 klst.
Taltími: Allt að 8 klst yfir 3G, allt að 14 klst yfir 2G (EDGE).
Internet: Allt að 6 klst yfir 3G, allt að 9 klst á Wi-Fi.
Spilun myndbanda: Allt að 10 klst.
Spilun tónlistar: Allt að 40 klst.


Vissir þú...
að iPhone er vinsælasta „myndavélin" á ljósmyndasíðunni Flickr?