Hér er um að ræða upprunalegu Apple heyrnatólin.
Heyrnatólin eru með hljóðnema þannig að hægt er að nota símann þinn handfrjálst. Á snúrunni er einnig lítil fjarstýring, sem er í formi einfalds hnapps á snúrunni, sem gerir þér kleift að svara símtölum, stilla hljóðstyrk og stjórna tónlist eða myndböndum.
Fjarstýringin á heyrnartólunum virkar á eftirtöldum tækjum:
iPhone 3GS / 4 / 4S
iPad 1 / 2
iPod spilurum sem eru framleiddir eftir 2009
Vissir þú...
að ef þú ert með iOS 5, því þá geturðu tekið mynd með því að ýta á hækka takkann á fjarstýringunni? Ef þú tekur myndir með þessum hætti þá minnkaru möguleikann á hreyfðum myndum.



