Parrot AR Drone fjarstýrð þyrla
1

Parrot AR Drone fjarstýrð þyrla

59.990 kr.




Fjöldi:

Til baka
Parrot AR Drone er þyrla sem þú stýrir með iPhone, iPad eða iPod Touch yfir WiFi tengingu. AR þyrlan býr sjálf til þráðlaust staðarnet sem þú tengist við úr iOS tækinu þínu, til að koma í veg fyrir truflanir.

Þyrlan er svo með tvær myndavélar sem hægt er að nota til að taka myndir á meðan flugi stendur.

Sjálfstýring á þyrlunni gerir flugtak og lendingu mjög þægilega. Eftir flugtak þá jafnar sjálfstýring þyrlunnar sig í 80cm hæð. Þegar þú ert að stýra þyrlunni þá geturðu ávallt sleppt fingrinum af tækinu og þá flýgur hún bara á staðnum þökk sé áðurnefndri sjálfstýringu


Áhyggjur eru óþarfar þótt þú tapir tengingu við þyrluna (t.d. ef rafhlaðan tæmist á iPhone símanum þínum) því þá tekur sjálfstýring þyrlunnar við, sem jafnar sig af áður en hún lendir hægt og örugglega.

Rafhlaða þyrlunnar dugir í 12 mínútna flug, og það tekur 90 mínútur að hlaða þyrluna.


Myndbandið að neðan gefur kannski skýrari mynd af því hvernig þyrlan virkar, og mælum við eindregið með því að horft sé á það ef þú ert að hugleiða kaup á tækinu.