
Af hverju tæki sem iPhone.is selur munu 1000 krónur renna í sjóðinn. Sjóðurinn vill gjarnan fá ábendingar um hreyfihömluð börn sem iPad gæti komið að góðum notum fyrir. „Við erum er alltaf að leita eftir ábendingum um börn sem við getum aðstoðað og hægt er að senda inn upplýsingar á iborn@iphone.is. Framtíðarmarkmiðið er að við getum þróað íslenskt forrit sem gæti nýst íslenskum börnum og auðveldað þeim að tjá sig.
Hér að neðan er smá upptalning á börnum sem hafa fengið iPad frá iPhone.is.

Þórhildur Nótt Mýrdal er með lömunarsjúkdóminn SMA1
iPad breytti lífi hennar en hún fór frá því að vera rúmliggjandi yfir í að keyra hjólastólinn sinn sjálf.
Að mati foreldra hennar varð þetta árangur af því að Þórhildur Nótt eignast Ipad sem hún fékk að gjöf sem varð til þess að hún að sýndi fram á meiri hreyfigetu en foreldrar hennar og læknar höfðu séð fyrir. Hún þjálfaðist með því að nota iPadinn og í dag ekur hún um í hjólastól eitthvað sem foreldrar hennar höfðu vonað en ekki séð fyrir. Iðjuþjálfarar voru búnir að vera heillengi að þjálfa hana upp en hún sýndi lítinn árangur, en strax þegar hún fékk ipadinn sýndi hún strax meiri hreyfigetu. Svo kom mikinn vilji hjá henni. Strax þegar hún fékk hann í hendurnar fór hún að sýna hreyfingar sem foreldrarnir höfðu ekki séð áður.
Hversu miklum árangri hún hefur náð eftir að hún byrjaði að nota iPadinn. Þegar fór í vakti það mikinn áhuga hjá henni strax að foreldrar hennar sáu strax hreyfingar sem þau höfðu ekki séð Þórhildi gera áður.

Kolbrún Eik Grétarsdóttir – 4 ára – Fæddist án þess að hafa myndað heilabrú milli heilahvellanna tveggja. Kolbrún er einnig með genagalla sem er ógreindur – Afleiðingar af þessu er að hún á erfitt með að læra nýja hluti og þarf oft að endurtaka sama hlutinn í langan tíma áður en hann lærist. Kolbrún fékk iPad í júní 2011.

Helena Sól Keilen – 7 ára – Fæddist með efnaskiptasjúkdóm sem takmarkar hreyfigetu og sjón – Helena fékk iPad í maí 2011 en iBörn og Blind börn á Íslandi styrktu hana.
Keran Stueland Ólason – 2 ára - Er með sama sjúkdóm og Þórhildur Nótt sem er taugahrörnunarsjúkdómurinn SMA1 – Keran fékk iPad í janúar 2011.

