Spurt og svarað um iPhone 4

Hvað koma iPhone 4 símarnir til með að kosta?

Verð til þeirra sem forpöntuðu á iPhone.is fram til 17 ágúst er 145.990
fyrir 16GB iPhone 4 og 166.990 fyrir 32GB iPhone 4.*

Ég lagði inn forpöntun, hvenær á ég von á því að fá símann?

Ef þú pantaðir í júní þá munum við reyna að afgreiða þína pöntun
fyrir 20 september og klára allar aðrar pantanir sem komu í júlí og
ágúst fyrir byrjun október mánaðar.  Forpantanirnar skiptu hundruðum
og tekur því tíma að kaupa nógu marga síma til að klára allar pantanir.

Hinsvegar gæti þetta allt gerst mun hraðar en við reiknum með núna ef
að birgjum okkar gengur vel að útvega síma, en við fáum símana frá 
þrem heimsálfum og því líkur á að okkur takist að afgreiða
pantanirnar hraðar.

Eru símarnir ólæstir?

Já, þeir eru klárlega ólæstir frá verksmiðju.  Við munum aldrei selja læsta síma vegna
vandræða sem slíkir símar kunna að valda um ókomna tíð, því aldrei er um raunverulega
aflæsingu að ræða á læstum símum, einungis hakk sem gerir símann óstabílan þangað til
að næsta hugbúnaðaruppfærsla kemur, þá þarf að hakka hann aftur þegar og ef nokkrum 
áhugamönnum tekst að búa hakk til að hverju sinni.


* við ábyrgjumst ekki sama verð fyrir þá sem panta eftir 17. ágúst en reynum eins
og áður að bjóða bestu verðin.