Skilmálar

Reikningur gildir sem ábyrgðarskírteini. Um leið og við afhendum þér þann búnað sem fram kemur á reikningnum viljum við leggja áherslu á mikilvægi þess að kynna sér sem best notkun búnaðarins í handbókum eða heimasíðu framleiðanda. Séu einhver atriði óljós eftir að hafa kynnt sér búnaðinn í handbókum framleiðanda, vinsamlegast hafið samband við þjónustudeild okkar í síma 6150000 eða með því að senda okkur tölvupóst á info@iphone.is

Ábyrgðin tryggir kaupandanum að varan verði laus við framleiðslugalla frá kaupdegi og út ábyrgðartímann. Ef FrameWorkz ehf fær tilkynningu um slíka galla á ábyrgðartímabilinu mun FrameWorkz ehf. svo fljótt sem auðið er,
annað hvort lagfæra eða skipta um vöruna sem reynist vera gölluð.  Ef varan er gölluð og ekki er séð fram á að hægt sé að gera við hana, mun FrameWorkz sambærilega vöru eins fljótt og auðið er.

Ábyrgðin gildir í að lágmarki þann tíma sem neytendalög segja til nema annað sé tekið fram.

Ábyrgðin tekur ekki til galla sem stafa af: 

  • Röngu eða ófullnægjandi viðhaldi, mistaka, misnotkun eða stillingum.
  • ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar
  • Notkun í umhverfi sem ekki er í samræmi við skilgreiningar á viðurkenndu umhverfi fyrir vöruna.
  • Aðrir en starfsmenn hjá FrameWorkz ehf hafa gert tilraun til viðgerðar eða breytinga án skriflegs samþykkis FrameWorkz ehf.
  • Tækið hefur verið tengt við ranga spennu eða straumtegund.
  • Verksmiðjunúmer og eða innsigli hefur verið fjarlægt eða rofið.

FrameWorkz ehf áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka.

Vöruskil á ógölluðum vörum:

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar.  Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru mun varan verða að endurgreidd að fullu.



FrameWorkz ehf er eigandi og rekstaraðili iphone.is og hulstur.is