iPhone.is gefur iPad

Við erum stolt að segja frá því að við gáfum Þórhildi Nótt Mýrdal áritaðan iPad þann 1. desember 2010.  

Þórhildur Nótt á við erfiðan og sjaldgæfan taugahrörnunarsjúkdóm að stríða sem veldur því að hún er að mestu leiti lömuð en hefur smá hreyfigetu í puttunum.   Eftir að faðir Þórhildar hafði samband við okkur til að spyrja út í forrit sem hann sá notað á iPad af barni með sama sjúkdóm og Þórhildur á youtube, urðum við svo spennt yfir öllum þeim tækifærum sem iPad gæti veitt Þórhildi að við gátum ekki hætt að velta þessu fyrri okkur.   Eftir margar andvökunætur og ofnotkunar á google komumst við að því hversu stórkostlegt hjálpartæki iPadinn er fyrir Þórhildi.  Tæki sem getur opnað möguleika fyrir hana til að tjá sig, læra að lesa, reikna, leika sér, horfa á bíómyndir og óendanlegt fleira.   

Við ákváðum því að gefa henni iPad í snemmbúna jólagjöf því við vildum ekki missa að þessu stórkostlega tækifæri að sjá lífsgæði hennar batna til muna.  Við ætlum því að fylgjast með hennar framförum og fjalla um það á Facebook síðu iPhone.is




Til baka